Sunday

Ný heimsálfa- nýtt blogg

Þar sem blogspot.com er bannad í Kína, hef ég flutt mig a www.misskopasker.bloggar.is
Sjáumst þar!
Pé.

Monday

Daga minna duttlungar

Ástarsorgin heyrir nú til í bakboka fortídarinnar og thví engin ástæda til ad hafa hana hér efst á skjá lengur. Ég leyfi thó myndum og fréttum af thessu ævintyri ad halda sér sem dokument um barnslega trú mína á ástina, og gódar minningar audvitad.
Nóg um thad. Ég hafdi hugsad mér ad skreyta thessa færslu med myndum margvíslegum af ævintyralegum athøfnum mínum sídastlidinn mánud, en thar sem tølvunni minni var stolid úr fangi mínu eru myndirnar og á burt. Full af ædruleysi yfir fingraløngum austantjaldsmønnum tel ég nú thad helsta:

* Magisk midsommer festival på Djursland er lítil hippahátíd haldin á dønsku midsumri. Á 7 áratug sídustu aldar keyptu 6 blómabørn thetta grídarlega fallega landsvædi á Djurslandi. Á midsumri héldu thau svo magisk midsommer festival fyrir sér líkt thenkjandi fólk. Thess á milli gengu kindur thar á beit. Sídan hefur thessari hefd verid haldi uppi af børnum blómabarnanna, en ca. 300 manns sækja hátídina ár hvert. Thangad fór ég med Gudbjørgu mína ólétta ásamt velvøldum skólaféløgum frá Ollerup. Eftir 3ja stunda kartøfluvakt hljóp ég berøssud um svædid med ødrum børnum vid vel mótada tóna frá hestvagnasenunni. Voda gott fyrir hippasálina mína og freknótt fór ég heim á Fjón.

* Á Fjóni stoppadi ég einungis hálfan dag thví leid min lá á Hróarskeldu. Ég ætla ekki ad fara mørgum ordum yfir thá viku, flestir hafa séd myndirnar. The Who gerdu thetta allt thess virdi, nema hvad ég saknadi Arnar eitt augnablik og thess ad their (The Who) tortímdu tó ekki hefdi verid nema eins og einum gítar.

* Ó Ísland! Líkt og gjæfan gjøful er fékk ég óvænt ferdafélaga í Íslandstúrinn minn, og ørugglega miklu betri en ádur fyrirhugadan ferdafélaga (eldgleypinn). Í fagurfjólubláum Polo fórum vid hring um Íslandid, ég og Simon póstur frá Sjálandi. Vid byrjudum á ad reyna nyju krossbøndin mín í fjallgøngu í Skaftafelli. Engin vonbrigdi, sei sei nei nei, ég valhoppadi eins og hind upp allt sem fyrir lá. Sumsé, frussugód krossbønd, enda búin til úr mér sjálfri.
Eftir akstur, flatbraud med kindakæfu, gistingu í Berunesi komum vid loks á........Vopnafjørd. Mmmmmmmmm! Allt er best á Vopnafirdi! 2 dagar í sælunni thar og thangad stefni ég aftur á næstkomandi føstudag.

Audvitad fór ég svo á Kópasker! Í kaupfélagid ad láta knúsa mig... Blendnar tilfinningar einkenndu thó dvøl mína á heimaslódum. Í fyrsta lagi eiga foreldrar mínir thar ekki heima lengur og mér nánast ókunn fjølskylda á húsid okkar. Í ødru lagi hafa túristavænar breytingar átt sér stad í Ásbyrgi og fyrir utan thad hvad mér er illa vid allar breytingar var byrgid mitt propp fullt af túristum og einhverjir bjévítans Thjódverjar eltu okkur á leyndó stadinn minn. Ekki svo gott fyrir sveitasálina mína, eeeeeeen túristafrír Dettifoss kl. 2 ad næturlagi var grædandi fyrir sárid...

Ad lokum í uppúrstands upptalningunni miklu er svo Svarfadardalurinn. Heim ad hitta Øspina sína, og Diddu og Stjána. Ljúft, ljúft var thad. Eftir raudvínsgløs, afmælissøng fyrir 17 ára Bjørkina, meiri søng og spjall tókum vid audvitad konsert. Ég og Øsp. Ég minnist thess ekki ad vid høfum verid bednar, en thad hefur ekki verid naudsynlegt hingad til. Ég spiladi á hid sjarmerandi falska píanó í Tjarnarstofu undir ómanneskjulega fallegan søng Aspar. Thad er kannski nærri sannleikanum ad segja ad ég hafi barid á píanóid. Mér hættir nefninlega til eftir ákvedid magn glundurs ad hamra á nóturnar eins harkalega og ég myndi vilja flengja Britney Spears. Ég leyfi mér ad kalla thad innlifun...

* Ef einhver er enn ad lesa thessa færslu eru pløn mín eftirfarandi:
Vopnafjørdur helgina 9-11 ágúst
Reykjavík 12- 19 ágúst
Danmørk/Fjón 19-23 ágúst
Kína 23 ágúst til júlí 2008

Skál!

Saturday

Eymd og myrkur, hér kem ég

Það er skemmst frá því að segja að áðurnefndur kærasti hefur nú sett hjarta mitt í blandara á fullan styrk.

Thursday

Af hjartaþjófnum...



Allir spyrja um kærastann. Upptalning á demónum mínum og lygar um hárlit virdast ekki klippa það fyrir lesendur mína.

En Anders heitir hann og er eldgleypir. Hann er vel upp alinn og afbragds greindur jóti. Ég fann hann í skólanum mínum góða, þar sem hann og stundar nám. Hann slær öll met í að heilla mig og er vænlegur til undaneldis. Það er honum helst til lasta ad hann er ekki enn búinn að biðja mín.

Ýtarlegri upplýsinga er hægt að krefja í athugasemdaformi, jú eða í júlí þegar ég tek hann með til fósturlandsins.

Skál!

P.

Tuesday

Undarlegt ferðalag

Ég blogga einungis þegar það akkúrat hentar mér fullkomlega þá stundina, og það er jú ekki, tja ýkja oft. Á nýtilkomnu mæspeisi mínu svara ég athugasemdum ætluðum mér, annað hvort með útúrsnúningum, eða bara ekki. Tölvupóstum svara ég alltof seint eða alls ekki, það er hending að ég hlusti á talhólfið mitt og ég þoli ekki sms-samskipti.
Ég hef oft ekki gefið fjölskyldu minni gjafir á þar tilætluðum dögum og hef marg oft beilad á ástvinum, skóla og vinnu.
Við fyrstu kynni virka ég í óteljandi tilvikum sem annað hvort snobbuð eða bara fýld.

Ofantaldar staðreyndir (og enn er af nógu að taka), hafa á tímum gert það að verkum að ég hef lagst í rekkju, breytt sæng yfir haus með áætlanir um að halda þannig til um alla eilífð. Ég hef líka verið á "píslarvottargelgjunni", þar sem ég var þess sannfærð að Guð leggði mig í einelti, ég átti mest bágt af öllum og enginn, í jarðnesku eða himnesku ríki skildi þjökuðu mig.
Nú og það gæti jú líka verið að ég væri svo ofdekruð, vanþakklát og löt og því ekki annað viðbúið en að ég væri óáreiðanleg og ill-elskanleg.

Þrátt fyrir þetta á ég yndislega fjölskyldu, óbrigðula vini og guðdómlegan kærasta. Fullt af fólki hefur tröllatrú á hæfileikum mínum, ég á aðdáendur í mörgum löndum, einn maður hefur gifst mér af ást og dýr elska mig. Nema kýr, en þær skynja máske að ekki elska ég þær. Þær eiga víst að vera svo skýrar...

Hvaðan fæ ég þá tilverurétt minn og yndislegt lífið???
Hljóta að vera spékopparnir...

knús, Pé








Monday

Þar sem áður var tóm eru nú aðeins blóm


Í hjarta mínu eru fiðrildi svo mörg, að þau hafa flogið niður í magann minn til að ná andanum. Sjálf næ ég varla andanum yfir dásamlegri tilverunni.

Wednesday


Ég er ordin ljóshærd og mun flytja til Kína í haust.