Wednesday

Glundur

Einstaklega annasøm vika thessi vika! Utan verkefnaskila og tónlistaræfinga tharf ég voda mikid ad vera ad dett'ída. Med sumarid í sinni mínu og skólaslit í sjónmáli er ég grídarlega thyrst oft. Ég get huggad mig vid ad thetta virdist vera gegnumgangandi ástand medal samnemanda minna og undergrunden er opinn á kvøldi hverju.
Eftir ákvedid magn af brjóstbirtu hættir mér til ad gleyma ad mér og Erni er meinad ad vera vinir og dettur thá svo óskynsamlega í hug ad slá á thrádinn til hans. Ég hafdi thó rænu á ad skrifa til hans afsøkunarbeidni daginn eftir slíkt óhapp en fékk svar til baka frá sambýliskonu hans. Vesalings stúlkan...

Tuesday

Og thau taka øll mér aftur opnum ørmum...

Mørgum til ánægju og møgulega ørfáum til ama, kem ég heim til Íslands 2. júli og stoppa í óákvedid langan tíma. Ég mun hafa adsetur í bílskúr í kópavogi og vonast til ad hitta sem flesta af ástvinum mínum.

Á dagskránni er:
  • sem flestir endurfundir med fjølskyldu og vinum
  • vinna sem minnst
  • fara nordur á land og sækja uppruna minn
  • borda slátur sem allra fyrst eftir heimkomu
  • skipta búi med Erni
  • skipuleggja sem minnst og láta lífid koma mér á óvart

Sunday

Úti er ævintýri

Sumir kunna ad vita ad ég vinn í Tívolíi. Thad vitnast hér med ad thad geri ég allt svo ekki lengur. Hid ljúfa ævintýri med 16 tíma vøktum á saurkaupi i pylsuvagni er á enda.
Do I miss it? ...nehh, ekki svo mjøg. Thrír vina/tívolísamstarfsmanna minna voru medhøndladir skítlega af yfirmønum sínum og reknir. Í mótmælaskyni fleygdi ég svuntunni og snéri baki vid den nordiske tivolipark. Full af réttlætiskennd og stolti, sólundadi ég svo øllum mínum launum á skralli í Odense.
Regrets = none

Annad í fréttum:
  • Ég er ekki ófrísk. Thad telst fréttnæmt thar sem flestir í kringum mig eru thad.
  • Fyrsta háskólaári mínu er senn ad ljúka. Ég tel thetta vera besta skólaár mitt til thessa og ég er enn jafn ástfangin af skólanum mínum og ég var vid fyrstu sýn.
  • Krossbønd i bádum mínum annars føgru hnjám eru enn slitin og ég hef ekki hugmynd hvenar ég fæ á thví bót. Og thar sem læknar hér í héradi virdast ekki vera vitund stressadir yfir thví nenni ég ekki heldur ad vera thad. Thar af leidandi gæti verid ad ég komi til ísl. í sumar.
  • Aungvan á ég kærastann og bædi hænum og kanínum hefur verid slátrad. Hænurnar og kanínurnar harma ég øgn en karlmannsleysid er blessun eins og er.
  • Ég keyri um á vespu thessa daganna sem ég nýlega festi kaup á. Ég hef sjaldan verid heitari...
  • Bædi gítar-og trommunám gengur øllum vonum framar. Fyrstu tveir gítartímarnir fóru í ad plástra aumt sjálftraust mitt eftir fyrsta og eina skipti sem Ørn heitinn reyndi ad kenna mér á gítar. Eftir thad gekk allt eins og í gódri lygi og nú finn ég hitann frá frægdarsólinni sem nálgast ódfluga...

That's all for now... P.

Thursday

Oflætisoddbrot

Hér er ég á ný