Wednesday

Aftan í Ollerup

Gott ef ég er ekki bara væmin í dag.
Ég er svo ástfangin af lífinu mínu! Skólinn minn er, tja... undursamlegur, nemendur hans og kennarar eru besta fjølskylda sem nokkur gæti óskad sér og mér thykja thad grídarleg forréttindi ad vera stødd thar sem ég er, ad gera thad sem ég er ad gera.

Mér finnst voda fullordins ad vera 2.årgang. Nýjir nemendur horfa á mig med óttablandinni virdingu (tíhí), allir thekkja mig og ég á sér bord í matsalnum. I ruuuule the school!
Føgin mín eru líka ordin meira fullordins. Núna er bara ár thangad til ég fer út ad hella visku minni yfir lotningafulla nemendur og føgin mín midast æ meira vid thad.

Tónlistin blómstrar sem aldrei fyrr, núna er ég ad læra tónsmída-, útsetninga og upptøkutækni og thad er bara iggi neitt nema skemmtilegt.
Thess utan er ég ad læra søng og slagverk og ég segi thad sem ég sit hér: ég er natural born trommuleikari...

Ég átti alveg ljómandi sumarfrí á íslandi:
  • Átti gódar stundir med fjølskyldu. Mamma og pabbi veittu mér húsaskjól og gódan íslenskan mat (fékk slátur vid heimkomu og rétt fyrir brottfor), hitti Bjarka bródur í 5 tíma (sem er alls kostar ekki stuttur tími thegar vid eigum í hlut), átti 10 daga med børnunum mínum yndislegu (sem fullordnast hradar en hárin vaxa á løppunum mínum) og elsta systir og mágur stoppudu í 3 daga.
  • Ég vann helling. Thvert á pløn mín reyndar, en ég var smidur og málari allt sumarfríid og græddi thar freknur eda tvær og fallega tónada vødva...
  • Ég fór í fjøgurra daga ferdalag nordur á landid. Svarfadardalur-Kópasker-Vopnafjørdur- Borgarfjørdur eystri, allt saman ógislega gaman og yndislegt- hefdi bara viljad vera lengur. En ég snéri aftur í hana gudsvoludu Reykjavík, endurnærd med æskublóma.
  • Ég skipti ekkert búi med Erni, en ég held ad flestum sé kunnugt af hverju. Sjálf á ég erfitt med ad sætta mig vid ástædur thess, en thad áfellist mig enginn fyrir ad sjá eftir gódum vini, er tad?
  • Lífid kom mér oft á óvart og ég naut thess í botn. Ó svo ljúft... Ég vard alveg hrillilega skotin í strák 2 døgum fyrir brottfør út, en thad er náttla bara týpískt. Núna er ég skotin í allt ødrum...

Sídsumars kvedjur til ykkar allra frá Danmørku, P.