Monday

Hlustá Zeppelin

Èg finn hvernig svadaleg færsla er í gerjun.
En thessi færsla er tileinkud gulldrengnum Ara Frey sem hefdi ordid 25 ára í dag. Til hamingju med daginn elsku hjartabarn, vid sjáumst thegar ég fer yfir í sælustraffid.
Knús frá P.

Wednesday

Í bláum skugga á bleiku skýji

Á suður Fjóni er allt best. Sumarið er komið, hálfum mánuði fyrr en annars staðar og er betra og fallegra en nokkru sinni. Hér syngja fuglarnir hærra og meira, blómin eru fleiri og fallegri og dýr ganga óáreitt um götur og engi. Menn og konur deila öllu og deila aldrei. Hér vinnur enginn, heldur elskast fólk í grasinu, reykir gras, borðar aðeins lífrænt ræktaða fæðu og lifir í núinu. Dýr og menn tjá sig með söngvum og kvæðum, svo fögrum að neikvæðni, stríð og hatur getur aldrei náð til þeirra sem á þau hlýða. Peningar eru óþarfir, því ástin nærir allt.
Hér bý ég. Hver vill koma í heimsókn?