Thursday

Hversdagslegt hjal

Ég tharf ad eiga gæludýr. Helst kisur. Mal róar mig á hátt sem engar pillur eda annad thar til gert getur gert.

Forgangsrød komandi árs:
  1. Íbúd thar sem kisur eru velkomnar
  2. Íbúd med badkari
  3. Kennarastada med frídindum á bord vid íslandsfaraleyfi í réttir og saudburd
  4. Íbúd med hita og rafmagni

Annad:

  • Ég er óskøp almennileg í dag og lundin er hin ljúfasta. Auk thess er ég vaxin upp úr sjálfsvorkunn. Já.
  • Kærastinn kvartar yfir ókvenlegu fari mínu oft á tídum...??
  • Ferda-fidrildin fløgra í maga mínum og ég hlakka ólátlega til sameiningu okkar systkina.
  • Ég óska mér enn saumavél í jólagjøf og thar á eftir saumakonu til sídri verka.
  • Ég er óskøp sæt midad vid tídarfar og er thess ekki efins ad nýju okurdýru andlitsvørurnar mínar eigi thar mestan heidur. En 15.000 kr. er ekki mikill peningur thegar spékopparnir mínir eru annars vegar. Nei.
  • Ekki alls fyrir løngu sagdi ég glettilega vid kærastann minn ad ég væri ad hugsa um ad "go natural" og hætta ad snyrta líkamshárvøxt minn. Hann svaradi blídlega: " Fínt ástin mín. Ég er líka ad hugsa um ad hætta alveg ad skeina mér".

Takk fyrir ad athugasemda hjá mér góda fólk, thad hressir mig svo merkilega.

Knús. Pé

Sunday

Tímabundid volædi

Thad er eitthvad voda stutt í pirringinn í mér thessa dagana. Ég hef grun um ad vetrar- bølvadur kuldinn hafi lædst í sálu mína og ælt thar.
Ég veit ad Asíu ferdin fyrirhugada mun hressa mig, en ég vil gjarnan hressast fyrr.
Andsk. hafi thad, er ég ein um veiklyndid?