Ég er komin heim á vestræna grundu frá Rússlandi, Hong Kong og Filipseyjum. Grídarlega gott frí en samt er ég einhvern veginn ekki stemmd fyrir ad skrifa ferdasøguna enn sem komid er.
Í stadinn óska ég øllum gledilegs árs í einlægri von um ad thad rætist.
Á theim 6 døgum sem lidnir eru af 2007 er ég búin ad:
- lenda í sjávarháska
- hafa øll systkini mín hjá mér á sama tíma. (Telst sennilega til søgulegra stóratburda nú á seinni tímum)
- horfa á klámmynd á kaffiteríu í Rússlandi.
- vera mjøg nálægt thví ad beita mann eda tvo af asískum uppruna ofbeldi.
- líta í spegil og fyllast lotningu yfir fegurd minni, svo brún og freknótt sem ég er.
- fara a.m.k. í 10, langar, heitar sturtur, en í asíuferdinni opnudust augu mín fyrir thví ad slíkt er meiriháttar munadur sem ekki allir geta leyft sér.
- liggja í ørmum ástmanns míns eftir langan adskilnad, sem ég hélt á tímabili ad yrdi eilífur.
Ég elska ad skrifa lista yfir allt møgulegt og hugsanlega ber thessi sída mín thess merki. Ég fékk einu sinni "The book of lists" ad gjøf, og ég get svarid thad ad ég fæ litlar fullnægingar vid ad lesa í henni. Thad er thá skemmst frá thví ad segja ad thegar ég horfi á "high fidelity" er thad sennilega ekki ósvipad thví thegar unglingspiltur horfir á klámmynd í fyrsta sinn. Bara adeins ødruvísi.
Jákvædi annáll 2006
- Ég lauk vid mitt fyrsta ár í Den frie lærerskole og byrjadi mitt annad. Thetta stendur upp úr thví skólinn minn er sem snidinn utan á mig og gerir mig svo óendanlega glada og góda.
- Ég keypti mér vespu. Thetta stendur audvitad upp úr, thví ekki einungis gerir hún mig óyfirgengilega svala thegar ég theysist um á henni heldur kemur hún mér einnig frá A til B rétt adeins hradar en medal madur getur gengid.
- Ég eyddi sumrinu á Íslandi. Ad sjálfsøgdu stendur thad upp úr thó ad sumarid sé sælla í Danmørku, thví ég átti gódar stundir med fjølskyldu og vinum sem ég vildi ekki skipta út fyrir nokkud annad. Átti lífsnaudsinleg samtøl og kókdrykkju med Kristrúnu, spiladi í brúdkaupi med Gerdu minni, knúsadi Kristínu sem thá bar tignarlega bumbu í annad sinn, og svo margt fleira med fólki sem skyldi endilega ekki taka thad illa upp ad thad sé ekki nefnt hér.
- Èg kynntist hinum áróska Jan Daggry sem féll fyrir mér flatur. Thad stendur upp úr thví ég féll ekki sídur fyrir honum og núna erum vid KÆRUSTUPAR.
- Ég fór til Asíu á fund systikina&co. Thad stendur upp úr, bædi af fyrrnefndum ástædum (thad gerist ekki svo oft), og af thví ad thad var yndislegt.
Gledilegt ár!